miðvikudagur, september 29, 2004

huh!

Voðalega er maður andlaus eitthvað þessa dagana eftir ferðina! Manni finnst bara ekkert spennandi búið að ske hér í Reykjavíkinni síðan þá, huh! En það gerist nú bara seinna ;o)

Var alveg í stresskasti í gærmorgun að klára gera einhvern fyrirlestur í næringarfræði sem ég átti að flytja eftir hádegi! Áttum að velja okkur einhverja sniðuga grein og fjalla um fyrir bekkin. Haldiði að sá sem flytur á undan mér hafi ekki valið sér SÖMU grein og ég!!!! oh.... þannig að allt streðið fyrr um morguninn var fyrir bí. Þurfti ég því ekki að flytja mína þá heldur núna á fimmtudaginn fyrir annan bekk... Þannig að það sem ég uppskar eftir allt púlið var að fá að hlusta á mis-skemmtilega fyrirlestra í 3 klst. á óþægilegustu stólum í heimi, hrmf...

Byrjaði svo daginn á því að sofa yfir mig í eina tímann sem ég átti að mæta í í dag, svo enginn skólaheimsókn þennan daginn! Get því jafnað mig á rasssærinu hér heima!