A Little Trip to Heaven
...a.k.a. Þykkvibær!
Litla fallega sveitaþorpið mitt er orðið að amerísku krummaskurði! Balti & co. eru búnir að gera innreið til okkar sakleysingjanna í sveitinni og hafa breytt svona smááá... Nú þegar komið er inn í þorpið lítur það út eins og það hafi verið klippt úr einhverri amerískri ræmu um einhverja "hillbillís" í ömurlegu krummaskurði (sko ekki var á það bætandi). Minnir helst á Fargo eða einhverja álíka mynd. Búið er að pota gömlum rafmangsstaurum hér og þar, fleygja upp einhverju bárujárnsplötum út um allt og breyta húsum og mála. Down-town Þykkvibær just ain't the same.
Annars var ég í þeim erindagjörðum í sveitinni að taka upp kartöflur. Í smá bóndaleik að keyra traktora (þýð.: dráttarvélar,-fyrir borgarbörnin) með smá hlass af kartöflum í eftirdragi, eða um það sem jafnar 32.000 poka af kartöfluflögum. Var sko látin vera á gamla traktors-skraninu í geðveikum hávaða og lúsast áfram, svo maður lét hugann reika/reikna á meðan ;)