þriðjudagur, september 21, 2004

You are what you eat!

Einn af þeim kúrsum sem ég er í núna er næringarfræði. Ágætis fag og svosem áhugavert að "kynnast" matnum aðeins. Í þessu fagi eins og mörgum eru svo verklegir tímar. Ein æfingin fólst meðal annars í því að þramma um með vigt í 3 daga og vigta allt sem maður lét ofnan í sig. Mér fórst það bara ágætlega úr hendi og gerði þetta eins og samviskan leyfði. Síðan var náttúrulega reiknað hvað maður borðaði mikið, hversu mikið af kaloríum og fleira svona skemmtilegt.

Í dag var svo önnur saga... Mælingar á líkambyggingu!!! :S
Þar stóðum við og klipum í okkur hér og þar með þar til gerðum pyntingartólum til að mæla fituna á bingóvöðvanum, maganum og svo ummál og fleira "skemmtileg". Eitt af þessu "skemmtilega" var fitu%mæling og svoleiðis og já...

Niðurstaða æfingarinnar:
-held það verði bara skyr í kvöld!