Brrr...
Rosalega er eitthvað kuldalegt úti! Held að veturinn sé loks að skríða inn. Él úti og kalt! Nú eru það bara húfa og vettlingar sem blíva. Spurning um að fara henda vetrardekkjunum undir Skranser, býður sig einhver fram? Reyndar þarf að umfelga svo það gæti orðið soldið snúið. Ætli maður láti ekki einhvern handsome gæja á dekkjaverkstæði um það.
Annars var ég að skoða síðuna dopsalar.tk. Maður spyr sig bara hvort að þessi síða eigi einhvern rétt á sér. OK, allt í lagi að segja fólki hverjir þetta eru ef það er 100% víst að það sé rétt! En come on, ekki vera skrifa bara skírnarnöfnin og ekkert meir, eða þá hvar sumt af þessu liði býr! Gaman fyrir nágranna þeirra! Samt það broslega við þetta er að skoða commentin á síðunni, sem eru nú ansi mörg. Hugsa að margir þeirra hefðu gott af því að fara á stafsetningarnámskeið hjá Glimmergellunni. Enda kannski ekki von að þetta fólk sé vel skrifandi þar sem margir hafa litla menntun á bakinu.
En aftur í lærdóminn...
p.s. Svo er stefnumót í kvöld, sjarmurinn Sean mætir aftur til leiks. Jahúúú....