þriðjudagur, október 26, 2004

Endursýning!

Fúlt! Þoli ekki þennan skjá einn. Allaf þegar maður ætlar sér að horfa á eitthvað á þessari blessuðu stöð þá er verið að enurtaka það í svona þrítugasta sinn. Sleppti því að liggja yfir TV-inu í kvöld og ákvað að læra í staðinn. Gulrótin í þessu var svo að slappa af yfir Judging Amy. En nei, eins og skjá einum er lagið þá var þátturinn í kvöld endursýndur, alveg dæmigert! hnuss... Fór því bara að spila Mah-Jong, einhvert kínverskt spil, í tölvunni! Skárri en endalausar endursýningar.

Annars var þetta bara ágætur dagur!