fimmtudagur, október 14, 2004

Ég forseti?

Þó að ég sé nú ekki búin að fylgjast mikið með forsetaslagnum í USA þá hef ég samt ákveðið hvern ég myndi kjósa ef ég gæti það. Sá heppni væri John Kerry! -Af hverju? Jú, ástæðan er einföld (like me) JK!

Svo var líka John (F) Kennedy = JK, ágætis forseti meðan hann var og hét (eða allavega fær maður það á tilfinninguna af amerískum bíómyndum).

Held ég verði líka forseti. Liggur það í augum uppi, ég hef allt það sem sem stórmenni þarf, JK :)

-Ekki satt?