fimmtudagur, október 07, 2004

Giftist í 53. sinn
72 ára gamall maður frá Malasíu kvæntist í vikunni í 53. skiptið. Hann þvertekur fyrir að vera glaumgosi, þótt sum þessara hjónabanda hafi aðeins varað í nokkra daga. Önnur vörðu þó í meira en áratug. Nýjasta eiginkona hans er ennfremur sú fyrsta. Hann kvæntist aftur konunni sem hann gekk fyrst með í hjónaband, fyrir 46 árum. Hún er nú 74 ára. Í millitíðinni hafði hann kvænst 51 konu.

Suma vitleysuna lætur maður nú yfir sig ganga, en að giftast aftur sama kallinum þegar hann er búinn að vera gifur 51 kellingu, eftir fyrra hjónabandið. Oh hell no! Vona nú að svo vitlaus verði maður nú aldrei!
- Þó efa ég nú að þetta sé satt!