Herramaðurinn
Síðustu vikur hef ég reglulega átt stefnumót við mann nokkurn. Hann er dökkhærður og hár og í fínu formi, hann er líka nokkuð eldri en ég, en mér er alveg sama, aldurinn skiptir ekki máli í þessu tilfelli. ;o) Alltaf þegar ég veit að það er von á honum í heimsókn kem ég mér þægilega fyrir og bíð spennt eftir honum, reyndar hef ég verið stundum soldið leiðinleg við hann því ég bara sofna þegar hann kemur, þá sérstaklega eftir erfiðar helgar.
Eins og ég þá hefur hann líka gaman af því að fara út á lífið og eru þau ófá boðin sem hann stundar. Hann þykir líka vera kvennagull og eru þær ófáar sem heillast af þokka hans og framkomu, en mér er alveg sama um það, hann er minn ;o) Hann segir ekkert þó að ég líti á aðra karlmenn og gefi þeim auga, svo þetta gæti bara ekki orðið betra! Reyndar lifir hann nokkuð háskalegu lífi, en það er allt vinnunar vegna svo ég skipti mér ekki af því!
Jú... sunnudagskvöld eru orðin að okkar kvöldum, James Bond er minn maður ;o)
Hver annar ætti það svosem að vera?