Mánudags sagan
Enn of aftur er kominn mánudagur! Vikan allt of fljót að líða og allt of mörg verk sem bíða, úff!
Helgin þaut hjá með tilheyrandi látum og skralli, enda kominn tími á smá djamm hjá stelpunni og var það auðvitað raunin ;)
Á föstudegi var kíkt í afmæli hjá Hjördísi afmælisskvíz. Stelpan bara alveg að verða 24, og ég auðvitað minnt á það um leið að ég væri að verða eldri :-( Hittumst við þar nokkrar sem höfum bara ekki sést langa lengi og var gama að hittast svona aftur! Hugsa það sé nú kominn tími á smá hóp hitting hjá A-skvízunum. En svo lá leiðin í bæinn eins og áður. Stoppaði þó stutt þar sem mín beið vinna á laugardagsmorgni og árshátið um kvöldið! En Hjördís, ég þakka fyrir mig. Kem svo til þín um jólin til að klára afganginn af bollunni og hinu áfenginu :)
Eftir að hafa selt nokkur stykki bjóra á laugardeginum var svo tekið til við að fara á árshátíð hjá Húsó! Fór ég sem maki, makinn hennar Jónínu. Olli það nokkrum sálum þarna á svæðinu vangaveltum þar sem viðkomandi héldu að ég og Ninnz værum í alvörunni saman! ha ha ha.... Nei, við erum nú ekki í því liðinu, strákar fá mína athygli í þeim málunum ;) En annars var þetta fínasta djamm, góður matur og herra Jónsi klikkaði nú ekki, þó klikkuðu túrkís bláu skórnir mínir eitthvað. Sökum sárra fóta gekk heldur illa að dansa, en maður lét sig þó hafa það að stíga nokkur spor og dilla sér smá! Úff... held það eigi eftir að líða nokkur tími áður en ég fer í þá skó aftur, kýs frekar eitthvað flatbotna enda er maður nú nógu hávaxinn fyrir. Maður verður bara stærri en allir strákarnir þegar maður stígur á svona "stultur", það er ekkert gaman.
Sunnudagurinn var svo þynnku dagur með meiru. The Buddettes skelltu myndum í tækið, (vondur) þynnku bras-matur borðaður og slúðrað og hlegið að atburðum gærkvöldsins :)
Vikan stefnir svo bara í lærdóm enda er af nógu að taka
kveð í bili elskurnar mínar
JK