Nemendafyrirlestrar...
...eru eitt af því sem fylgir þessu háskólanámi. Frekar svona mis skemmtilegir oft á tíðum og fjalla um eitthvað sem enginn nema sá sem er að flytja skilur. Mín bíða nokkrir svona skemmtilegri fyrirlestrar, bæði til að flytja og að hlusta á, var t.d. að klára flytja einn áðan, gekk bara ágætlega (held ég!) var að segja fólkinu að kók skemmir tennurnar.... eitthvað sem enginn veit eða þannig! En núna eru bara 3 fyrirlestrar sem ég á eftir, böö...
Annars hef ég verið að gera lítið spennandi hluti núna síðustu daga. Það bókstaflega rignir yfir mann einhverjum þurrum og leiðinlegum vísindagreinum til að lesa og verkefnin eru fljót að staflast upp. Verð því að rífa mig í hörku lærugír og ekkert hangs...
Fyrirmyndin í dag: Dóra & Ninna -fyrir að sýna gífurlegt þrek og þol að vera læra, jafnvel á laugardagskvöldi!!!