föstudagur, október 01, 2004

Október!!!

shite! Það er kominn október! Mínz voða lítið farin að læra og gengur hálf illa eitthvað að setja sig í stellingarnar fyrir það, eitthvað eirðarleysi í gangi! Verð því að vera über dúleg næstu vikur svo maður nái að standa sig í þessum verkefnum sem bíða manns, stór sem smá! Að ógleymdum öllum félagslega tengdum "verkefnum" sem ég er búin að plana í október og ekki eru þau nú fá ;o)

Held að helginni verði svo eytti í afslappelsi. Gamla konan er bara alveg uppgefin eftir fjörið síðustu helgi og planar að skella sér í sveitasæluna. Sofa þar ljúfum svefni við undirspil gæsaskytta sem leynast þar víða, murkandi lífið úr aumingja gæsunum. Já! ég er á móti svona óþarfa fugladrápi, hananú!

Samt er nú OKTOBERFEST í skólanum í kvöld og EGÓ (sælla minninga) að spila í NASA, huh! Mig langar nú að kíkja en neh, sleppi því í þetta sinn þó það sé nú frekar freistandi... spurning hvernig kvöldið fer! *Geisp*