miðvikudagur, október 27, 2004

Vetrarstress

Ég er komin í árlega vetrarstressið. Finn það bara hvernig stressið skríður upp bakið mér nagandi í það. Prófin nálgast óðfluga, á fimmtudaginn er mánuður í fyrsta próf!!! Á meðan bíða ritgerðir eftir að vera skrifaðar, bækur eftir að vera lesnar og verkefni eftir að vera kláruð. Veit ekki hvernig ég ætla að hafa þetta allt saman af, en vona bara það besta.

Langar helst að leggjast undir sæng þar til þetta er allt saman liðið hjá.
Væri það ekki bara einfaldast!

Ég vildi að það væri kominn janúar!