fimmtudagur, nóvember 18, 2004

Allt stopp

Ef ég væri tengd við tæki núna sem myndi mæla afköst mín myndi bara heyrast bíííííííííííí.... og línan sem sýnir virkni væri flöt!

Alveg tóm með þennan ritgerðarræfil. Hvað er eiginlega hægt að væflast með svona skriferí lengi, uss... Mér til málsbóta vil ég þó segja að ég hef ekki skrifað ritgerð síðan á síðustu öld, held ég, allavega var það í Fúsunni gömlu, hef síðan bara haldið mig við skýrslugerðir eftir að ég steig fæti í þekkingarlaugina í HÍ.

Jæja, leiðindafærsla, hnuss
Farin í háttin!
-eigið bara góðar stundir.