fimmtudagur, nóvember 25, 2004

Bhúúú!!! I'm not alone!

Ég er farin að halda að ég sé ekki ein hér í íbúðinni. Það er farinn að læðast að mér sá grunur að það búi draugur hér með mér!
Fyrir það fyrsta þá var ég að byrja skrifa þennan pistil, var búin að skrifa titilinn og tvö orð og þá "publish-eraði" bloggerinn pistilinn. En ég var bara í hægindum mínum að skrifa... spooky! Draugurinn vill greinilega ekki að ég tali um hann og hann kann á tölvu.

Í dag hefur svo draugurinn "fiktað" þrisvar sinnum í TV-inu mínu.
Fyrsta atvikið var það að í dag kviknaði allt í einu á TV-inu. Draugurinn vildi sjá eitthvað Beach Boys myndband á S1, hefur líklega gaman af þeim. Tók þá skranið úr sambandi.

Annað atvikið var búinn að kveikja á imbanum aftur. Var að "horfa" á Jay meðan ég var að læra. Allt í einu slökknar á TV-inu. Drauginum finnst Jay ekki skemmtilegur.

Þegar ég var svo búin að kveikja aftur og Judging Amy í essinu sínu, hækkar þá TV-ið ekki allt í einu. Draugurinn heyrir líklega illa.

Meðan allt þetta gerðist sat ég við tölvuna!!!

Með bestu kveðju
Katrín og Draugurinn