föstudagur, nóvember 26, 2004

Dagur 5

Jæja, nú er leiðindavikan loks að verða búin :)
Helstu afrek eru að vera búin að skrifa og skila ritgerð. Reyndar gekk það þónokkuð brösulega og varð ég nátturlega að hafa svona Katrínar-style á þessu öllu saman, eins og að eyða nokkrum blaðsíðum þegar ég var langt á veg komin, rétt missa af kennaranum þegar ég ætlaði að skila og allt eftir því! Jábbs, ég veit, seinheppni minni eru engin takmörk sett.

Síðan til að halda upp á þetta fór ég í langþráð hairdo. Já, ástandið á hárinu á manni var orðið frekar sorglegt. Nú er ég því búin að lita og fínesíera upp á nýtt og er svolítið svona red-look á stelpunni ;-)

Planið er svo að eyða helginni í lærdóm og jafnvel standa við það í þetta sinnið, enda fyrsta próf eftir viku!!!
Rúllaði bara í sveitina í dag í mömmumat og friðsældina og á að reyna efla heilasellurnar eitthvað. Sjáum til hvernig það á eftir að ganga.

Góða helgi allesammen
Kv.
Katrín rauða ;)