Dagur tvö...
...í leiðindaviku #2 hefur því miður verið eitthvað afkastalítill. Staða ritgerðar er þessi; rituð orð: 0. Ekki nógu gott. Mér hefur samt tekist að klára bleika áherslutússinn við heimildaskoðun, svo þið vitið að ég er að gera eitthvað. Veit ekki hvernig ég fer að því að hespa þessu af... treysti á guð og lukku. Ef einhver er fróður um stofnfrumugróf, endilega láta mig vita, ritgerðarpíslin á að vera um það.
Kíkti svo í tilraunadýratíma í dag. Fékk að pína eitthvert rollugrey þar, nei... segji nú bara svona, var voða góð við greyið, er nú enginn dýraóvinur sko, þó ég hafi kannski stungið hana með smá nál! En djö fýla af manni þegar maður kom heim, ojbara, lyktaði eins og kind langar leiðir!
En bezt að halda áfram,
Katrín kveður, meee...