þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Dagurinn fyrir bí...

Uss uss... eins og allt of margir dagar í vetur hefur dagurinn í dag bara farið í ekki neitt í. Ætlaði mér að vera dugleg og fara á fætur í morgun og læra eitthvað, en nei... letiblóðið ég lá í bælinu þar til korter var í tíma og drattaðist þá loks á lappir. Eftir tímann var svo komið hádegi og þá er náttúrulega krúsjal að fá sér eitthvað í gogginn, pulsu skellt í pott -eldamennska námsmannsins alveg í hávegum höfð þennan daginn. Er síðan búin að eyða restinni af deginum í ýmsar erindagjörðir og snatterí. Sit svo núna með kakóbolla og skinkuhorn og bíð eftir að fara í tíma, sem verður til fimm. Þá er vinnudeginum opinberlega lokið og ekkert lært í dag! Fuss og svei. Ætli maður eyði því ekki enn einu kvöldinu við compjúterinn að sjóða saman einhverjar ritgerðarromsu sem virðist engann enda ætla að taka.

Doofus Ég vildi að ég væri búin með þennan skóla!