Þegar ég verð stór?
Á yngri árum vafðist það ekki í vafa fyrir manni hvað maður ætlaði að gera þegar maður væri orðin stór. Man ég t.d eftir því að á tímapunkti ætlaði ég að verða lögga! Já, lögga. Veit ekki hvaðan stúlkukind í sveitinni fékk þá hugmynd, ætlið "valdið" sem þær hafa og allt actio í kringum löggurnar í TV-inu hafi ekki heillað. Svo kom nátturulega sá tímapunktur sem stelpunni dreymdi um að verða hárgreiðslukona. Heh... reyndar lá það nokkuð fljótt í augum uppi að hæfileikarnir á því sviði væru frekar takmarkaðir, svo að sá draumur fór forgörðum.
Á unglingsárum langaði unglingsstelpuna svo að læra ljósmyndun eða jafnvel að verða leikari. Ekki hefur neitt orðið úr því. Sönghæfileikarnir eru nú ekki upp á marga fiska, hvað þá leikhæfileikarnir, en þetta þarf víst að hafa til að verða góður leikari.
Síðan þegar maður eldist og verður "vitrari" (að maður telur) fer "þegar ég verð stór" starfið að flækjast eitthvað fyrir manni. Í dag veit ég bara ekkert hvað mig langar að gera. Er jú að stúdera einhverja líffræði og mun ljúka þeim stúderningum brátt. En hvað á þá litli líffræðingurinn að gera? Fara í hvítann slopp og liggja yfir smásjá? Vinna við að drepa hvítar mýs? Erfitt val. Kannski maður flytji bara til USA og verði svona CSI gella, heh... væri kannski ekki svo vitlaust, sérstaklega ef gæjarnir eru svona myndó eins og í TV-inu!
Kemur einhver með?