þriðjudagur, nóvember 02, 2004

Get ekki beðið...

...eftir að þessi vika verði búin, eða bara eftir því að klukkan slái 12:15 á föstudaginn. Þá verð ég nefnilega búin með þessa killer-leiðinlegu nemendafyrirlestra mína. Ótrúlegt hvað þetta er tímafrekt. En maður ætti nú ekki að vera hrósa happi neitt of snemma því þegar þeir eru búnir bíða bara ritgerðirnar eftir að verða skrifaðar og meira til! Maður er bara aldrei búin, úff...
Verst er hvað það er orðið stutt í þessi próf, rúmur mánuður... Scared

En það góða við þessa viku er Sálarball á NASA!!! JIBBÍ! Nú er bara að fara rifja upp taktana þó Sálarlögin gleymist nú seint...

Og allir saman nú: "Sódómaaaa.... "