mánudagur, nóvember 08, 2004

Helgin bara búin og ný vika tekin við, full af verkefnum af ýmis konar tagi. Var þessi helgi bara hin fínasta, þrátt fyrir vinnu og svoleiðis fylgifiska. Föstudagskvöldið var kannski frekar dapurt hjá stelpunni, enda orðin langþreytt, og var farið í háttin á þeim tíma sem ungabörn fara í háttin og vaknað þegar unglingar vakna, semsagt fullt sofði!

Laugardagskvöldið var svo toppur helgarinnar, en þá var þetta fína Sálarball :o) sálin klikkar sko aldrei! Byrjaði kvöldið á hefðbundinni drykkju í kotinu og tókst það nu bara stórvel verð ég nú að segja. Drykkirnir runnu ljúflega niður, reyndar kannski of vel hjá sumum... ;-) -nefnum engin nöfn og mikið hlegið og haft gaman. NASA var svo alveg pakkað af fólki, kannski aðeins of mörgum, en tja það var bara gaman :0) En djö... var blautt úti þegar dansiballið var búið, gerði þau mistök að labba heim í þessu crazy veðri og var hundblaut þegar loksins var komið heim... hairdo-ið allt farið og make-upið komið niðrá kinnar. Semsagt svaka sæt Katrín sem lenti um seint og síðar meir heim á Eggertz. Held ég splæsi nú bara í taxa næst.

Eyddi svo bara sunday í að gera skýrslur, vei vei vei... eitthvað til að gera þynnkuna enn betri! huh...

En já, svona var nú það.
Annars ætla ég að koma smá auglýsingu að fyrir hana litlu sys, en hún er að safna fyrir námsferð til THAILANDS í vor... búhú... ég fer ekki :o( Nema einhver eigi svona hööndraðþúsundkrónur handa mér, þá vinsamlegast látið vita :-)

Frá litlu sys: VANTAR EKKI EINHVERJUM KLÓSETTPAPPÍR EÐA ELDHÚSRÚLLUR - Á TIL Á ALVEG FEIKNAR GÓÐU VERÐI? UPP M PENINGANA OG STYÐIÐ FÁTÆKAN NÁMSMANN Í NÁMSFERÐ

Áhugasamir skiljið eftir pantanir í commentunum!