Hættulega HAXA-bollan!!!
Jæja já... Held ég hætti bara að drekka! úff... Kræklingakvöldið var svakalegt. Var soldið fín á því hér heima áður en ég fór og dreypti á smá vætvæni! Þegar mætt var á staðinn svona X-tra fashionably late (rúmum klukkutíma) vegna smá misskilnings, var bara dreypt á meira vætvæni og enn meira vætvæni og líka smá rauðvíni og borðuð súpa og grafin gæs með! Maturinn var bara fínn og svo eftir mat hófst líka þetta ægilega partý! HAXA-bollu var skellt á borð og úff... hún var smökkuð vel og vandlega, reyndar einum of vel barasta. Held að ég ætti bara að láta hana í friði next time. Sunnudagur í samræmi við skemmtanin á laugardeginum, reyndar nokkuð gloppóttur en Dóra hjálpaði mér bara að fylla upp í eyðurnar og sei sei sei... það sem maður getur gert! össh!
