föstudagur, nóvember 05, 2004

Nátthrafninn ég!

Það mun verða seint eða aldrei verða sagt að ég sé morgunhani! Ég er ein af þeim sem er að einhverju brasi langt fram á kvöld og finnst fátt betra en að liggja undir sofandi undir sæng fram að hádegi.

Núna eru um 8 tímar í síðasta fyrirlesturinn minn á þessari önn :o) Sit ég hér við compjúterinn að setja hann saman. Já! Ég er ekki búin en það fer að líða að því, eða það vona ég allavega. Ætli ég verði svo ekki búin að flytja herlegheitin þegar einhver les þetta, eða þá að ég verð að verjast spurninga-skothríð kennarana. Vona allavega að ég fái ekki sömu útreið og þeir sem voru síðast!

En allavega gekk stofnfrumufyrirlesturinn ágætlega í dag, þó svo að gamalt "stess-einkenni" hafi kíkt í heimsókn!

Þakka góðu straumana :)