þriðjudagur, nóvember 30, 2004

Í próflestri...

...ætti að banna blogger, msn og já, bara netið eins og það leggur sig! Veit ekki hvað oft ég er búin að standa sjálfa mig að því að ætla bara taka 10 mín pásu, sem allt í einu er orðin að hálftíma og örskots stundu síðar er klukkutíminn komin. Svo þegar maður er búinn að þessu er kannski lært í annan klukkutíma, ef það er svo gott. Þá er maður búinn að vera svo duglegur að maður á alveg aðra pásu skilið og fær sér að borða og kíkir í blaðið á meðan og tíminn líður, tikk takk... og svona gengur þetta út daginn. Fyrr en varir er dagurinn búin, frekar afkastasnauður, samt var maður að "læra" allan daginn.

Uss... Svona er sjálfsaginn mikill!

Held ég ætti bara að keyra heim í sveitina, koma mér fyrir í kjallaranum og vera þar. Kæmi kannski einhverju í verk.