fimmtudagur, nóvember 11, 2004

Rólega helgin...

...sem átti að vera núna næstkomandi helgi, er líklega öll farin um þúfur. Og þó! Get allavega ekki kvartað yfir því að hafa ekkert að gera. Á morgun er ég að fá gæja í heimsókn og ekki bara einn, heldur TVO. Þeir tveir ætla að vera hér yfir helgina svo eitthvað verð ég nú að sinna þeim, ætli þetta verði bara ekki svona double-date legt þar sem við eigum ábyggilega eftir að skella okkur í bíó, taka vídjó og fara í keilu, sund eða eitthvað skemmtilegt. Já já... nóg að gera. Svo er maður búin að fá boð í partý í Bólstaðarhlíðinni, svo af nógu er að taka. Einhvers staðar inn á milli ætla ég svo að hafa tíma að læra smá.... obb obb obb... spurning hvernig það á nú eftir að fara.

Oh well, síðari tíma vandamál.

Svo er Arafat kallinn bara dáinn, eða officially dáinn. Maðurinn er náttúrulega búinn að vera dáinn í nokkra daga, það hafa bara verið vélar sem héldu honum "á lífi". Held að Arafat sé einn af þeim stjórmálaköllum sem hafi verið í sviðsljósinu alveg síðan ég man eftir mér og eru það nú þó nokkuð mörg ár. Fannst hann alltaf svo fínn með þennan hvíta og svarta klút á hausnum þegar ég var krakki, heh!! Alla vega eru mjög skiptar skoðanir um þennan mann. Ég hef svosem ekki myndað mér neina, góður fyrir suma, slæmur fyrir aðra. Lít nú samt ekki á hann sem hryðjuverkamann eins og USA-people-ið gerir og Ísraelsmenn. Held það séu nú ekki margir hryðjuverkamenn sem hafa fengið friðarverðlaun Nobels, eða fékk hann þau ekki annars. Spurning um hvað hr. Bush á eftir að verða stimplaður í framtíðinni terrorist vs. peace-maker???

Nóg af þvaðri í bili!
Þar til síðar bless bless