þriðjudagur, nóvember 09, 2004

What's up Doc?

Jæja jámms. Lítið að ske þessa dagana, frekar slappt eitthvað. Var í skólanum í dag að tilraunadýrast. Fór og sá líka þessar huge rottur, pínu ponsu litlu músarunga, voru svo nýjir að maður sá næstum bara í gegnum þá, voru nú ekkert frýnilegir greyin og já síðan voru einhverjar "hjúmaaangus" kanínur þarna. Fengum að læra að handfjatla þær aðeins, en for your info þá er besta leiðin til róa greyin "að vera bara rómantískur við þær" eins og skólafélagar mínir orðuðu það. Potaði ég svo með sprautu í eyrað á einni, fór nú ekki í gegnum eyrað eða stakk þann sem var að aðstoða mig við þetta svo þetta fór allt blessunarlega fram. Jámms þetta var það helsta sem gerðist í dag.

Ætla nú að fara læra og lesa um hvernig vísó gæjarnir fóru að því að klóna hana Dollý hér um árið! Maður verður nú að vita eða kunna það ef maður ætlar að verða einhver vísindamaður eða kona réttara sagt.

kveð í bili
og já... minni á WC-pappírinn hjá litlu sys. :o)
Bathroom Knocker