---
Lítið að frétta úr kotinu þessa vikuna. Dagar joggingbuxna, gamallar flíspeysu, úfins hárs og gleraugna allsráðandi hér á bæ, semsagt frekar nördaleg. Hér er bara hangið inni ýmist við tölvuna eða í einhverjum glósum með það plan að vera læra. Hefur gengið ágætlega hingað til. Félagar mínir í próflestrinum þessa dagana eru rokklandsgaurarnir: Guðni, Freyr og Óli Palli. Ágætis "félagsskapur" að hafa þá, þó maður geti nú kannski ekki spjallað mikið við þá. Breytti þó aðeins af vananum um daginn og kíkti í dýflissuna til Glimmergellunnar og Bleiku, ágætis tilbreyting það, fínt að fá að tala við fólk.
Jú og svo skilaði ég loks ritgerðarræflinum sem ég er búin að vera veltast með allt of lengi í dag. Vei vei vei! Engin meistarasmíð þar á ferð og hef aldrei sitið við jafn leiðinleg skrif og þennan ræfil.
En pásan búin og mannerfðafræðin bíður
vahúúúú