sunnudagur, desember 26, 2004

Jóla jól...

Jæja, enn ein jólin að líða.
Búið að vera alveg þrælfínt. Hef haft það alveg ljómandi gott í sveitinni, þar sem hefur verið sofið og borðað. Sjaldan jafn mikið sykurát á manni en á jólum og auðvitað haldið fast í þá "hefð" þetta árið sem fyrri. Ég meina jólin eru nú bara einu sinni á ári ;o)

Jólafríið eitthvað stutt og snubbótt þetta árið. Fer aftur í vínið á morgun að afgreiða freyðivín og annað "bús" fyrir gamlárs. vei vei vei...

En ég vona að þið hafið átt góð og gleðileg jól öll sömul, það gerði ég.
Bestu jólakveðjur til ykkar allra, nær og fjær
JK