sunnudagur, desember 19, 2004

Ljúfa líf

Get ekki líst því þessari dásemdartilfinningu að hafa ekki þessi próf lengur hangandi yfir hausnum. Nú get ég sofið út án þess að samviskan sé eitthvað að naga mig og eytt deginum í hreina leti. Til marks um það er klukkan þrjú og ég enn í bælinu, undir sæng og að horfa á fótbolta í þokkabót, eitthvað sem ég geri aldrei. Enda er þetta ágætisleikur, Liverpool að bruna yfir Newcastle.

Helgin búin að vera ljómandi fín, nema kannski fyrir utan einhvern smávegis óhressleika um miðjan dag í gær. Fagnaði próflokum með drykkju í litla kotinu, jólakortaskrifum í bland við það (skemmtilegt að skrifa jólakort þegar komið er rétt í aðra tánna) og svo með tilheyrandi skralli og skemmtilegheitum downtown. Ljómandi fínt alveg hreint.

Er svo að reyna hafa mig í smá jólagjafakaup þennan eina frídag minn. En það er bara of gott að vera heima og gera akkúrat ekki neitt.

Letikveðjur
mizz Jay Kay