laugardagur, desember 04, 2004

sexþrjátíu

Fór á fætur á ansi ókristnilegum tíma í dag, eða 6:30. Á mínum kvarða kallast þetta að það sé enn nótt. Veit ekki hvað það er langt síðan ég fór á fætur svona snemma á LAUGARDAGSMORGNI (ok var morgunhani í sumar en come on) þetta hefur oft verið sá tími sem maður er nýsofnaður eftir djamm í bænum, en nei, nú var bara skriðið á lappir. Ástæðan, jú jú, átti að mæta í próf. Gloríaðist eitthvað í gegnum það, engin afrek þar á bæ. Prísa mig sæla að ná, enda er það what counts :o)

Skoppaði svo í smá jólagjafakaup eftir hörmungarprófið. Reddaði nokkrum pökkum undir tréð í þetta sinnið en ekki öllum þó. Redda því síðar.

Svo er bara að demba sér aftur í þekkingarpollin.
*splash*