þriðjudagur, desember 28, 2004

"Venjulega" lífið

Ekki get ég sagt að ég sakni skólans eitthvað mikið þessa dagana. Samt sem áður verð ég að segja að ég er þakklát fyrir það að geta verið í skóla. Þegar maður fer nefnilega að vinna svona "venjulega" vinnu sér maður hvað maður hefur gott af því að vera í skóla. Það er maður getur (vonandi) fengið einhverja almennilega vinnu í framtíðinni. Ekki standa við búðarborð og gaspra "viltu poka?". Frekar óspennandi finnst mér.

Annars búið að vera frekar rólegt í búðinni síðustu daga. Frekar letilegir dagarnir. Kannski ekki furða því eflaust liggur hálfur Kópavogurinn ennþá í'ðí miðað við það magn sem fólk keypti fyrir jólin. En leikurinn fer þó að æsast er nær dregur gamlárs.

En ætla njóta þess að þurfa ekki hafa það vofandi yfir mér að eiga að vera læra og skella mér í smá imbagláp.

Adios!
JK (alveg að verða gömul!!!)