þriðjudagur, janúar 04, 2005

2005

Gleðilegt nýtt ár! (soldið sein, ég veit)
Jæja, fjórði dagur ársins 2005 að verða búinn. Árið hefur verið frekar tíðindalaust hingað til en fínt samt sem áður. Hef á tilfinningunni að árið 2005 eigi eftir að verða gott ár og ætla ég bara að trúa því áfram þar til eitthvað annað kemur í ljós. Hef nú ekki sett mér nein nýársheit frekar en fyrri ár, nema það að ég ætla ljúka við þessa bansettans BS gráðu mína og bara hafa það virkilega gott, ekki svo slæmt. Þarf ekkert að lofa sjálfri mér að hætta reykja þar sem ég geri það ekki, eða vera dugleg í líkamsræktinni þar sem ég stunda hana ekki *ehemm...* Engin loforð verða sett um að vera duglegri að læra, þar sem þau eru hvort eð er aldrei efnd svo why bother.

Annars var ég að skoða horoscopið mitt á netiniu og þar stóð: plan ahead to get ahead. Nokkuð til í því!