Aftur í "gleðina"
Í dag er síðasti dagurinni í þessu svokallaða jóla"fríi". Hefur reyndar verið eitthvað lítið um frí þar sem dögunum hefur verið eytt í vinnu, námsmaðurinn verður að hórast aðeins (þó ekki í eiginlegri merkingu) til að lifa veturinn. Á morgun hefst svo skólinn aftur með tilheyrandi stundatöflu veseni. Mæting á slaginu 8:15 í líftæknilega örverufræði. Segir mér hugur að þetta eigi eftir að verða heilagir skróputímar þar sem það lítur út fyrir að þetta séu einu tímarnir sem þarf að mæta í á mánudögum. Great!!!
Annars var helgin fín. Smá afmælispartý í kotinu og skemmtan í bænum. Þakka ég allar gjafirnar sem ég fékk, eiga eflaust eftir að koma að góðum notum ;o) *TAKK TAKK*
Búið að vera pjúra letidagur í dag nema hvað ég sýndi smá húsmóðurtakta og skúraði allann bjórinn og hlaupið af gólfinu sem lenti þar í gærkvöldi svo að nú er pleisið alveg sjæní spæní.