laugardagur, janúar 22, 2005

Dúddí rúddí dúúú...

Gleðilegan Þorra!
Einhverjir búinar að gæða sér á þorramat? Ég gæddi mér á hangikjeti yfir Idolinu í gær. Skutlaðist í sveitina til m&p þar sem verið var að bjóða þorrann velkominn með hákarli, sýrðum pungum og fleiru þorra kruðerí. Lét ég nú samt vera að gæða mér á þessu hefðbundna "góðmeti". Ljúffengt kartöflusalat sem mamma sauð saman fékk alla mína athygli :o)

Búin að eyða deginum eins og versti karlmaður gerir. En bíllinn var tekinn í gegn og þrifinn og bónaður, hátt og lágt. Lét það nú samt vera að horfa á fótbolta.

Var svo rétt farin að læra núna áðan. Hjúff... komst yfir þá vitlausu hugdettu að fara læra á laugardagskvöldi, og þar að auki efnagreiningu!!!

Sveitaloftið eitthvað sterkt í dag ;o)