Elskan mín!
Ég er komist að því að ég er elskuð. Elskuð af fullt af fólki sem ég þekki ekki neitt og í raun og veru kæri mig ekkert um að vera "elskuð" af. Einnig er ég "vina" ansi margra eða "elsku vina". Skil þetta bara ekki alveg.
Satt best að segja skil ekki alveg hvað það er sem fær fólk til að segja "elskan mín" við einhverja bláókunnuga manneskju sem það hefur aldrei hitt áður og kemur jafnvel til með að sjá aldrei aftur.
Málið er að þetta eru orð sem ég heyri iðulega í búðinni minni þegar ég er að afgreiða einhverja kúnna. Eru stelpur sem vinna á kassa svo miklir englarassar að þær geta ekki verið kallaðar neitt annað en elskur? Ég er farin að halda það! Auðvitað vill maður jú að fólk sýni manni almenna kurteisi, en það er líka alveg nóg að segja "þakka þér fyrir" í stað "þakka þér fyrir elskan mín". Maður getur fengið alveg hroll niður í tær þegar einhverjir gamlir creepy kallar segja þetta við mann og á "góðum" degi langar manni stundum einna helst að örskra "ÉG ER EKKERT ELSKAN ÞÍN!!!" En auðvitað geri ég það ekki heldur brosi bara sætt og þvingað á móti. PUH...
Elskan, er orð sem ég vil heyra frá einhverjum sem þekkir mann eitthvað og þykir vænt um mann. Ekki frá miðaldra fólki.
og hananú....
Farin að fá mér TULE
Eigið góðar stundir elskurnar mínar ;o)