Fjandans...
Í dag, 25. janúar, eru liðnir 47 dagar síðan ég skilaði prófverkefni í einum kúrs og einkunnin er ekki enn komin, hrmf.. !#?$%# Vesen! Hr. Lánasjóður lætur mann víst ekki hafa neina aura meðan þetta er svona. Iss.... Á meðan eru nemendur í öðrum skólum flestir löngu búnir að fá sínar einkunnir, bæði úr "jóla"prófunum og endurtekningarprófunum. Leiðinda menntastofnun þessi H.Í.
Eeeen...
Til að gera skapið betra er stefnan sett á að sjá hinn guðdómlega Colin Farrell í hlutverki Alexanders mikla. Vei!!! Er mér nokk sama þó að myndin hafi ekki fengið bestu dóma í USA því ég fer bara í þeim tilgangi að berja goðið augum :o)
Síðan er stefnan sett á skemmtilegt laugardagskvöld með the Buddettes. Svo að þetta lítur bara ljómandi út, þrátt fyrir einkunnaleysið!