foj...
Ef ég verð ekki dáin úr leiðindum í lok þessarar annar þá verður það kraftaverki líkast. Mætti í fyrirlestur í einu af þessum æsispennandi fögum sem ég er í og my oh my... geispaði svo mikið að ég hélt ég myndi í alvörunni geispa golunni. Veit ekki hvernig á eftir að fara fyrir mætingu í þessu fagi, hugurinn segir mér að hún eigi eftir að verða eitthvað slöpp.
Til að bæta á gleði dagsins leit ég svo á stjörnuspá Birtu fyrir árið. Ástarmálin eiga bara víst eftir að verða jafn spennandi eins og þau eru. Vei!!!! Held ég eyði því bara því sem eftir er af árinu í klaustri því eins og staðan er á ég ekki eftir að missa af neinu. Er þó ekki það mikill kjáni að ég leggi alla mína trú á þetta svo að ég bíð kannski aðeins með klaustrið.
Stanzlaust stuð að eilífu...