Gleðin hafin
Fyrsti skóladagurinn í dag. Sökum mikils leiðindaveðurs fyrir utan gluggann minn kl 8 í gærmorgun var sængin valin og svefninn tók öll völd þannig lítið var mætt í þennan eina "skróputíma" þann daginn. Ákvað því að vera betri manneskja í dag og mætti í báða tímana mína í dag. Þetta var nú frekar fámennt, vorum 8 í einum tímanum en 10 í hinum. Hlýtur að vera frekar fúlt að kenna námskeið sem svona fáar hræður eru í og þar að auki mæta aldrei allir svo þetta verður eitthvað fámennt, en hvað um það ég borga mín skráningargjöld og vil fá það sem ég á rétt á fyrir aurana mína.
Mér til mikillar gleði rann svo ein einkunn inn í dag í fagi sem ég bjóst alveg við að hafa fallið í en ég slapp í þetta sinnið. Jei!!! Gæti bara orðið svo að það verði engin sumarpróf í sumar og stelpan útskrifist bara í júní. Ég læt mig allavega dreyma um það.
Er svo búin að vera dunda mér við það að finna einhver fyrirtæki sem maður getur sótt um vinnu í. Skrítið að þurfa að fara finna sér eitthvað framtíðardjobb. Það er nátturulega sá möguleiki í stöðunni að reyna við að fara í master, en ég held ég geymi það smá. Verður sett á hold í svona ár eða svo.
En... ætla reyna búa til eitthvað CV. Verður víst eitthvað stutt og snubbótt hjá mér en hvað um það. Geri mitt besta!
Jay-Kay