fimmtudagur, janúar 06, 2005

Góður Þrettándi!

Fyrsta degi mínum sem aldarfjórðungsgömul er senn að ljúka. Dagurinn hefur verið hreint út sagt frábær. Einn sá skemmtilegasti afmælisdagur langa lengi. Fékk líka þetta fína dekur í gjöf frá vinkonunum og mikið var það gott, vá!!! Takk stelpur. Verður erfitt að toppa þetta ;o)

Vil líka þakka allar þær kveðjur og aðrar gjafir sem ég er búin að fá í dag. Gott að vita að maður á góða að :)

Það verður sæl 25 ára kvennsa sem sofnar í kvöld með bros á vör, við sprengingar þrettándaflugeldanna.

Kveðja
JK
-afmælisbarn