Loksins!
Á degi 48 rann einkunnin úr síðasta prófverkefninu í hús. Degi eftir að ég lét í ljós reiði mína að hún væri ekki enn komin. Tilviljun? Er ég mjög ánægð yfir árangrinum. Besta einkunn mín á önninni og er önnur hæsta einkunn sem ég hef fengið í HÍ, svo ég kvarta ekki :o) (smá mont)!!!
Fór annars í bíó í kvöld, en ekki á herra Colin Farrell. Skundaði með sys á eina franska mynd, já, franska. Myndin sem var fyrir valinu var A Very Long Engagement, eða eins og hún kallast á okkar ástkæra ylhýra "Trúlofunin langa". Verð ég bara að segja að peningunum var vel varið og yfirgaf ég bíósalin alveg sátt. Fyrir þá sem ekki vita er þetta nokkurs konar ástarsaga um stelpu sem leitar að unnusta sínum sem týndist í stríði. Voða sæt en soldið sorgleg mynd. Bara gaman að sjá stundum eitthvað annað en einhverjar formúlu-Hollywood myndir í bíó.
Komin háttatími hjá skólastelpunni og hún fer í háttin sátt við daginn.
JK