Með lakkríslykt í hárinu
Í kvöld fengu ljósu lokkarnir að fjúka. Nei, ég klippti ekki á mér hárið heldur var reynt að færa það í upprunalegt horf svo að black is back. Kellingin er orðin dökkhærð eins og hún á að vera og ljótu trash skilin farin af höfðinu. Ljósu/red-looking lokkunum var drekkt í dökkum lit sem lyktar eins og lakkrís, svona lykt eins og var í gömlu tússlitunum með lykt (þessum svarta sko). Vona nú að lyktin hverfi með tímanum því ekki vil ég anga eins og svartur "lakkrístússpenni". Glimmergellan setti sig í hlutverk hárgreiðslukonu og stóð hún sig með prýði. Litaði kannski eitthvað aðeins meira en hárið í leiðinni ;-) en það var ekkert sem smá bómul og própanól gátu ekki lagað. Kann ég henni bestu þakkir fyrir og kannski maður fái að hóa í gellu við svona tækifæri.
Annars líst mér ekkert á það að í næstu viku byrjar febrúarmánuður!!! SHIT! Er EKKERT byrjuð að læra, frekar en fyrri daginn, og er ég ekki alveg nógu ánægð með ástand mála. Ætlaði að byrja gera eitthvað af viti í þessari viku, en því miður virðist stefna í það að eitthvað lítið verði gert í því. Því verð ég að byrja í næstu viku. En eitthvað segir mér að þetta eigi eftir að verða að einhverjum snjóbolta sem á eftir að rúlla áfram fram að páskum og þá BÚMM... lærdómssprengja fyrir próf :o(
Verð nú að reyna standa mig.
Ég get, ég get, ég get.....