miðvikudagur, febrúar 02, 2005

*-*-*-*-*-*

Jæja, þá er maður búinn að rífa sig upp úr sunnudagsgleðinni. Reyndar fyrir löngu síðan því það er jú kominn miðvikudagur. Helgin er bara rétt handan við hornið og enn sem komið er lítið búið að læra í þessari viku, usss usss... Er þó reyndar að lesa mér til um einhver sýklalyf sem stendur en hætti því brátt því það á að skoppast í babó með skvízunum.

Var annars að fá þá hugdettu að gaman væri að skella sér smá til útlanda í sumar. Svona smá skrepp bara á litla tónleika. U2 eru nefnilega að byrja að túra og það væri alveg tær snilld að fá að berja goðin augum, ásamt svona nokkur þúsund öðrum. Kallarnir eiga til dæmis að spila í lok júlí í Parken DK. Yrði hreint ekki leiðinlegt að plana einhverja ferð þangað :o)

Læt mig allavega dreyma um þetta í bili.
Sumir draumar geta jú alveg ræst :)