mánudagur, febrúar 28, 2005

Ó boí!

Mars byrjar á morgun! Grrr... Það þýðir að það eru innan við 2 mánuðir í fyrsta próf!!! ónó! En er nú ekki enn farin að stressa mig á því, enda "nægur tími" þangað til. Á meðan ætla ég bara að eyða tíma mínum í eitthvað annað skemmtilegra.

Rólegheita helgi liðin. Kíktí í bíó með skvízunum á Closer. Alveg ágætismynd að mínu mati. Er nokkuð viss um að allir geta fundið sjálfan sig í einhverju atriðana og held ég bara að sumt fólk hefði hreinlega gott af því að sjá hana. Og hana nú! ;0)

Annars hef ég bara frá fáu að segja þessa dagana. Einhver lægð er í slúðurheimum, sem er í sjálfu sér bara gott mál, þannig séð! Nema þið þarna úti lumið á einhverju skemmtilegu slúðri sem þið viljið deila með mér??? :)