Bolla!
Bolludagurinn að verða búin. Sveikst auðvitað ekki undan og fékk mér bollu í dag eins og flestir íslendingar hafa ábyggilega gert. Lét þó ekki bakarahæfileika mína njóta sín í þetta sinnið og verlsaði bara nokkur stykki í búðarholunni. Lét þó á það reyna og þeytti rjóma með líka þessum fína HÁVÆRA handþeytara mínum. Svei mér lætin sem eitt lítið apparat getur framkallað. Var líka á góðri leið með að hafa íbúðina rjómalagða eftir þeytinguna því sullið þeyttist út um allt! Suss.... En bollurnar voru góðar :-)
Hélt svo að ég myndi GUBBA yfir tv-inu áðan. Kom mér vel fyrir í sófanum með ostapopp og allar græjur og ætlaði að narta í það yfir uppáhaldinu, C.S.I. en ojbara... þátturinn byrjar á því að það er eitthvað lík að bútast niður og svo löggurnar að ganga eftir þjóðveginum að tína upp leyfarnar... eyra hér.... löpp þarna.... já... hvað vantar fleira??? Var fjót að pakka ostapoppinu niður og beið með að borða það þar til eitthvað geðslegra birtist á skjánum.