miðvikudagur, febrúar 16, 2005

Komin í leitirnar!

Gleði ríkir á bænum.
Röddin fannst aftur seint í gærkvöldi svo að nú get ég talað á ný!!! Raddleysið var orðið frekar slæmt á tímabili þar sem sumir voru hættir að þekkja mann í síma....

Annars hef ég nóg fyrir stafni þessa dagana. Get allavega ekki kvartað yfir verkefnaleysi. Meðal annars á ég eftir að gera skýrslur, byrja á einhverjum ritgerðum og lesa heilan helling, auk þess að klára þessi yndisaukandi heimadæmi í gleðigjafanum efnagreiningu... brrr.....

Til að toppa vitleysuna í skólanum þarf ég svo að mæta í verklegan tíma kl 9:00 á laugardagsmorguninn.... æ mig auma! Veit nú ekki hvernig ástandið á eftir að verða á manni þá þar sem planið er sett á að mæta í litla vísó og "50 ára" afmælisveilsu á föstudagskvöldið!!!
Svo það verður bara party on.....