Nóg að gerast...
Bara kominn mánudagur enn eina ferðina! Síðasta vika þaut framhjá með látum og helgin með tilheyrandi skralli :o)
Til að sum it up hvað búið er að gera:
Til að sum it up hvað búið er að gera:
- Panta miða á U2 tónleika :) :) Loksins fæ ég að sjá þá sviði og þar að auki út í London sem er hreint ekki verra ;o) Jahúúú! *mont-mont-mont*
- Kíkti í mína fyrstu vísó í ár. Fór í skógargöngu í hlíðum Esju-fjalls, í pilsi í þokkabót. Mæli ekki með því. Drakk svo bjór... og meiri bjór...
- Í framhaldi af vísó var kíkt í "50 ára afmæli". Fínasta skemmtun þar... sem endaði svo á Hressó þar sem var dansað villt og galið!
- Mætti í skólann rúmum 4 tímum eftir djamm.... ekki alveg jafn mikið stuð þar og kvöldinu áður. Púff... þetta voru erfiðir 2 tímar!
- Annað afmæli á lau.kvöldið. Soldið lengi að koma mér í gang, enda ekki búin að jafna mig á kvöldinu áður. En þegar komið var í gírinn var ekki snúið til baka ;o) Smakkaði líka þetta fína "töfrateppi" á Prikinu sem fær að verða partur af djammrútínunni eins og grjóninn á Ara eftir þetta ;)
- Sunnudagurinn notaður til að ná upp svefni og sjónvarpsglápi.
Sem sagt fínasta helgi! :o)
