miðvikudagur, mars 16, 2005

Í morgunsárið

Hvernig getur þetta fólk sem kemur fram í morgunsjónvarpinu verið svona hresst og frísklegt, þegar klukkan er næstum nótt (allavega hjá mér) ?

Held ég yrði ekki góð í það hlutverk að koma þarna fram. Með koddafar á kinninni, bólgin augu og úfið hár. Ekkert sérlega fögur sjón það.

Þeir sem koma þarna fram hljóta að vakna klukkan 5 á nóttunni til að slétta úr klesstum kinnum, bæla niður hárlubbann og sparsla yfir baugana.

Held ég sofi nú frekar!