Afrek dagsins....
...eru nú eitthvað fá!
Dagurinn byrjaði á því að ég hélt ég væri búin að týna peningaveskinu mínu og sem aldrei þessu vant voru einhverjir aurar í því.... Gerði líka þessa fínu rassíu að leita að því. Íbúðin sem var öll á hvolfi er nú sjæní spæní þar sem það var leitað alls staðar, meir að segja í ísskápnum, fataskápnum og ruslinu. Að lokum kom svo buddan í ljós en var þó allt annars staðar en hér.
Oh well....
Eftir þessa raun að leita að veskinu ætla ég svo að fá mér noodles í hádegismat. Jú jú... gengur það vel en oj... skellti einhverju kryddi sem fylgi með pakkanum og gaus þá líka upp þessi þvílíka FJÓSALYKT. Hélt ég myndi æla yfir diskinn og núðlurnar fóru í ruslið.
Endaði á því að ætla fá mér popp, svona á gamla mátann - í potti. Jæja... fer að hita olíuna en það vill ekki betur til en það að ég gleymi mér eitthvað öööörlítið og áður en ég veit af er íbúðin að fyllast af reyk!!! Potturinn út á svalir og pleisið reykræst. Ekkert smá reykur sem getur komið af smá 0líuglögg....
Allavega lét ég þetta duga og lagði mig bara.