þriðjudagur, apríl 05, 2005

Aumingja blogg

Eitthvað varð síðasta færsla stutt og snubbótt. Kenni ég bloggernum alfarið um þetta. Samt hefur samband okkar tveggja verið mjög gott í gegnum tíðina, honum hefur greinilega ekki líkað það sem ég var búin að skrifa. En eníhú....

Margt búið að gerast síðan die last time.

Fór á árshátíð hjá Vínbúðinni um helgina (já við sem seljum vínið verðum líka að smakka það svona þegar tækifæri gefst til). Veitti fyrirtækið líka vel :Þ og var alveg séð til þess að nóg vætvæn og redvæn væri í glösunum hjá manni, auk fleira góðmetis til, ekki leiðinlegt það! Skemmti ég mér bara þrælvel, enda voru Paparnir að spila og er það nú venjulega ekki leiðinlegt þar sem þeir eru ;) Bókað mál að maður skellir sér á ball með þeim áður en það verður of langt!

Svo hef ég reynt að eyða vikunni í að læra eitthvað en rétti andinn hefur bara ekki verði til staðar. En með smá pepsi MAX er ég öll að komast í gírinn... svo að bækurnar mega fara vara sig... yeah right!


Annars verð ég að deila með ykkur samtali sem ég átti um helgina á djamminu.

JK fer á barinn og þar fer einhver stráklingur að tala við hana.
- eftir smá chit chat gerist þetta...
Strákurinn: Hvað ertu gömul?
JK: Segist vera alveg hundgömul, og sé orðin aldarfjórðungsgömul. (do the math)
Strákurinn: Æ, nei... ekki segja það, ég er svo lélegur í STÆRÐFRÆÐI.
-Eftir nokkra umhugsun hans kemur svo þetta:
Strákurinn: Bíddu bíddu.... ertu þá sautján og hálfs?
JK: Hlær, já ég er sautján og hálfs (í kaldhæðnistón)
Strákurinn: Ertu í alvörunni bara sautján?
JK: já já...
Strákurinn: Ertu bara sautján og að vinna í ríkinu!!!

-Stuttu seinna kemur félagi kjánans og útskýrir fyrir honum að skvísan sé 25 en ekki 17 og hálfs
Strákurinn: HA!!! ERTU TUTTUGUOGFIMMÁRA!! (og fannst ég greinilega ægilega öldruð)
- Ákvað þá félagi stráksins að koma honum bara í burtu áður en hann myndi ljóstra upp meiri fávísi sinni og nýtti ég tækifærið og forðaði mér bara í burtu!

Mikið geta sumir verið miklir kjánar. En skemmtilegt compliment engu að síður ;)


Bless í bili
JK
-feel like seventeen again :)