Fyrsta prófið búið! Gekk svona la la... held ég hafi nú náð en það verður pottþétt engin tía eða einkunn þar í kring á ferðinni. En aðalmarkmiðið er að ná prófinu og ég vona að það hafi tekist.
Svo tekur bara við meiri lestur og skemmtilegheit þar til föstudagsins þrettánda maí, en þá tek ég vonandi síðasta prófið mitt í HÍ fyrir þessa blessuðu B.Sc. gráðu. Vona bara að sá föstudagur verði happadagur en ekki óhappadagur, því ekki veitir af enda efnagreiningarviðbjóður þar á ferðinni.
Næsta mál er svo bara líftæknileg örverufræði! Held ég geti nú ekki komið með neinn skemmtilegan fróðleiksmola úr því eins og því síðasta sem ég var að lesa en það er aldrei að vita.
Bara 13 dagar eftir af viðbjóði svo það er best að halda áfram!