Gleðilegt sumar :)
Sumarið loksins komið!
Vona ég nú að þetta eigi eftir að verða gott og skemmtilegt sumar og er stefnan sett á það að hafa það svoleiðis.
Fagnaði sumri í gær með að hangsa út í skóla yfir skýrslugerð, oj! En bætti þau leiðindi upp með því að skella mér í bíó með litla bró. Kíktum á Mr. Spongebob Squarepants eða Svamp Sveinsson sem hún kallast á okkar ástkæra ylhýra, og er hún nú bara stórskemmtileg, eða svo fannst mér allavega og gátum við bæði hlegið alveg helling að henni :)

.
Síðan er ég komin með vinnu í sumar. Ætla bara að vera í Össur aftur þetta sumarið... bíð svo bara eftir því að mér verði boðið eitthvað flott líffræðidjobb síðar :)